| fim 26.mar 2026 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
UTAN VALLAR: Stærstu útgjöld Vals árið 2025 voru verktakagreiðslur
Í ársreikningi Vals fyrir árið 2025 má sjá að tekjur hækkuðu um 17%, launakostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn, eignir hækkuðu um 66 milljónir króna, skuldir meira en tvöfölduðust og eigið fé batnaði.
Greinin var einnig birt á utanvallar.is
Rekstrartekjur Vals voru 616,8 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um rúmlega 88,8 milljónir á milli ára, eða sem nemur 16,8% hækkun. Stærsti tekjuliðurinn hjá Val á síðasta ári voru styrkir og auglýsingar. Sá tekjuliður var 53,9% af öllum rekstrartekjum þeirra. Í skýringum er sá tekjuliður sundurliðaður og þar má sjá að sá peningur kemur að mestu leyti frá aðalsamstarfsaðilum, eða rúmlega 264 milljónir af 332 milljónum króna.
Þar á eftir er næststærsti tekjuliður Vals aðrar rekstrartekjur, tæplega þriðjungur rekstrartekna. Í skýringum má sjá að þær tekjur koma að stærstum hluta frá UEFA, eða rúmlega 181 milljón króna af 208 milljónum króna.
Þá má sjá að tekjur vegna sölu leikmanna voru 29,8 milljónir króna á síðasta ári, tæplega 7,6 milljónum krónum lægra en árið áður þegar þær tekjur voru 37,5 milljónir króna. Síðustu fimm árin hafa tekjur Vals af sölu leikmanna verið tæplega 100 milljónir króna.
Rekstrargjöld Vals voru 570,4 milljónir króna á síðasta ári. Rekstrargjöldin hækkuðu um rúmlega 67,8 milljónir króna á milli ára eða tæplega 13,5% hækkun. Stærsti útgjaldaliður Vals á síðasta ári voru laun og launatengd gjöld, ríflega 68,7% af heildarútgjöldum Vals. Þar á eftir var annar rekstrarkostnaður 17,5% af útgjöldum Vals. Samkvæmt skýringum ársreikningsins var það ferðakostnaðurinn sem vóg þyngst í öðrum rekstrarkostnaði, hátt í 42 milljónir króna.
Launagreiðslur Vals voru samtals 391,8 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um ríflega 37 milljónir króna á milli ára. Í skýringum ársreikningsins er launagreiðslurnar sundurliðaðar og þar má sjá að verktakagreiðslur eru stærsti einstaki liðurinn. Verktakagreiðslur síðasta árs námu 262 milljónum króna, tæplega tveir þriðjungar af launaútgjöldunum.
Launahlutfallið lækkaði á milli ára og var 63,5% í árslok 2025. Síðustu fimm árin hefur launahlutfall Vals að meðaltali verið 71,4% en það er þó árið 2022 sem sker sig út. Það ár var launahlutfall Vals 93,8% en fyrir utan það ár hefur það verið í kringum tvo þriðjungshluta.
Ef leikmannasölur eru teknar út fyrir sviga þá hefur uppsöfnuð rekstrarafkoma Vals verið neikvæð um 12.768.987 krónur síðustu fimm árin. Þegar leikmannasölur eru teknar með inn í reikninginn má sjá að uppsafnaðar hagnaður nemur 87.590.852 krónum. Enga fjármagnsliði er að finna í ársreikningi Vals.
Eignir Vals stóðu í 214,6 milljónum króna í árslok 2025 og hækkuðu um ríflega 66 milljónir króna á milli ára. Stærsta eign Vals er krafa á aðalstjórn sem er 161 milljón króna. Þetta er í raun handbæra fé Vals. Í skýringum er tekið fram að knattspyrnudeildin er rekin sem deild innan félagsins og hefur því ekki sérgreindan efnahagsreikning. Í sjóðstreymisyfirlitinu er líklega áhugaverðasti punkturinn sá að félagið keypti leikmenn fyrir samtals 35,5 milljónir króna á síðasta ári.
Næststærsta eign Vals eru eignfærðir leikmannasamningar, sem stóðu í 47,2 milljónum króna á síðasta ári. Loks eru viðskipta- og aðrar skammtímakröfur tiltölulega litlar, eða tæplega 6,4 milljónir króna.
Í árslok 2025 skuldaði Valur 36,3 milljónir króna, sem er hækkun upp á 21 milljón króna eða rúmlega 142,5% hækkun. Skuldahlutfallið þeirra hækkaði af þeim sökum upp í 16,9% en hafði verið 10,1% árið áður. Síðustu fimm árin hefur skuldahlutfallið verið 11,3% að meðaltali
Eigið fé Vals var 178,3 milljónir króna í árslok og hækkaði um 44,5 milljónir króna á milli ára þökk sé góðrar rekstrarafkomu.



