Fotbolti.net
11.11.26 - 10:01
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá Alicante

Bundesligudómari í Búlgaríu

Florian Badstübner dæmir leik Búlgaríu og Íslands.

Florian Badstübner dæmir leik Búlgaríu og Íslands.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Ísland leikur gegn Búlgaríu ytra á í C-deild Þjóðadeildarinnar á föstudagskvöld. Leikið verður í Plovdiv sem er næststærsta borg Búlgaríu.

Íslenska liðið er í bílstjórasætinu í riðlinum og stefnir að því að taka sex stig úr riðlinum og styrkja sína stöð.
Veðbankar telja sigurlíkur Íslands gríðarlegar
TENGT EFNI

Veðbankar telja sigurlíkur Íslands gríðarlegar

Florian Badstübner, 35 ára Þjóðverji, verður með flautuna en hann var gerður að alþjóðlegum dómara í upphafi síðasta árs.

Badstübner hefur dæmt stóra leiki í þýsku Bundesligunni og þá hefur hann einnig verið að dæma í Sambandsdeildinni á þessu tímabili. Hann var fjórði dómari á Laugardalsvelli í fyrra, þegar Ísland tók á móti Úkraínu.

Búlgaría - Ísland
Dómari: Florian Badstübner - Þýskaland
Aðstoðardómarar: Christof Günsch og Philipp Hüwe.
Bundesligudómari í Búlgaríu
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.