11.11.26 - 11:25
Elvar Geir Magnússon
Pochettino tilbúinn að skrifa undir við Man Utd

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA

Michael Carrick.

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA
Mauricio Pochettino er reiðubúinn að taka tilboði frá Manchester United um að gerast næsti stjóri liðsins. BBC greinir frá.
Það stefnir allt í að Pochettino stýri United gegn Liverpool á Anfield þann 22. nóvember.

TENGT EFNI
Man Utd í samningaviðræðum við Pochettino
United eru í viðræðum við Argentínumanninn um að hann taki hugsanlega við af Michael Carrick, en búist er við að Carrick verði leystur frá störfum í dag eða á morgun.
Pochettino, sem er fyrrum stjóri Tottenham og Chelsea, vill sýna bandaríska fótboltasambandinu virðingu og mun bíða eftir því að United komi með formlegt tilboð. United þyrfti að greiða 7,5 milljónir punda til að leysa Pochettino undan samningi hans sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.
Bandaríska landsliðið á framundan tvo leiki gegn Haítí 8-liða úrslitum Concacaf Þjóðadeildarinnar. Mögulegt er að Pochettino yfirgefi Bandaríkin í miðju verkefni.
Framkvæmdastjórinn Omar Berrada og yfirmaður fótboltamála Jason Wilcox funda með Sir Jim Ratcliffe í Mónakó í dag og er búist við því að þeir leggi til að Carrick verði látinn fara. Fundurinn fer fram í Mónakó þar sem Ratcliffe á heima þar.