11.11.26 - 11:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vill festa Hlyn til lengri tíma - „Alveg klárt að við munum styrkja með nokkrum mönnum"

U21 landsliðsmaðurinn Hlynur Freyr Karlsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur í bikarúrslitaleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristófer Ingi, Dagur Fjeldsted og Andri Yeoman eru með lausa samninga.

Eyjólfur Héðinsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, ræddi við Fótbolta.net í vikunni. Hann var spurður út í leikmannamál, hvort von væri á því að leikmannahópurinn yrði styrktur.
Eyjólfur segir að bikarmeistararnir vonist til að geta haldið Hlyn Frey Karlssyni sem var á láni frá sænska félaginu Brommapojkarna seinni hluta tímabilsins.

TENGT EFNI
Ræðir ráðninguna á Jökli - „Erum að fara aðeins aftur í það horf“
Hvernig er með samningslausu mennina, Kristófer Inga Kristinsson, Dag Örn Fjeldsted og Andra Rafn Yeoman, eru viðræður í gangi?
„Já, það eru viðræður í gangi og við sjáum hvert það leiðir okkur. Við erum til í að halda þeim öllum."
Verandi með yfirsýn yfir hópinn, er ljóst að þið verðið að styrkja ykkur í ákveðnum stöðum?
„Við vorum með Hlyn Frey á láni og við erum mjög til í að festa hann til lengri tíma, sjáum hvort það gangi ekki alveg örugglega upp."
„Við erum alveg mjög opin fyrir styrkingum, sérstaklega ef við náum ekki að endursemja við þá leikmenn sem eru með opin samning, þá þurfum við klárlega að styrkja okkur. Við þurfum að finna leikmenn sem passa vel inn í það sem við erum að gera, það er alveg klárt að við munum styrkja með nokkrum leikmönnum."
Hvernig er samtalið við Brommapojkarna varðandi Hlyn?
„Það er opið, við erum í samræðum við þá núna hvernig við getum mögulega leyst það. Þeir eru að klára sitt tímabil og svo munum við taka upp þráðinn," segir Eyjó.