11.11.26 - 10:30
Kári Snorrason
Stórir skór að fylla í hjá Stjörnunni - „Hefði viljað skilja við þetta á annan hátt“
Auglýsing

Mynd: Stjarnan

Mynd: Stjarnan
Bergvin Fannar Helgason gekk nýverið í raðir Stjörnunnar eftir að hafa rift samningi sínum við uppeldisfélagið ÍR.
Bergvin er 23 ára gamall framherji sem skoraði sjö mörk í 18 leikjum í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Fótbolti.net ræddi við Bergvin í gær í tilefni skiptanna.

„Ég var bara með riftunarákvæði í samningnum hjá ÍR, ákvað að nýta hann. Síðan bara fljótlega eftir það þá heyrðu einhver lið í mér og þar á meðal Stjarnan og fór sem fór,“ sagði Bergvin aðspurður um hvernig vistaskiptin komu til.
Hefði viljað skiljað öðruvísi við ÍR
Bergvin er uppalinn ÍR-ingur og hefur alla tíð spilað fyrir félagið, hann segir það hafa verið erfiða ákvörðun að nýta riftunarákvæðið.
„Það var ekki alveg eins og ég vildi kannski skilja við þetta. En í enda dags fannst ég þurfa að taka ákvörðun núna fyrir mig. Fannst þetta rétti tími til að taka skref upp á við. Erfið ákvörðun en ég sé ekkert eftir henni.“
Hvernig hefðiru viljað skilja þá við ÍR?
„Það hefði nú ekkert verið leiðinlegt hefðu þeir fengið einhvern pening. Það voru kannski einhverjir sem voru smá sárir og eitthvað. En eins og ég segi, ég sé ekkert eftir þessu í dag.“
Ertu búinn að fá einhverjar sneiðar úr Breiðholti? „Já já, einhverjar. En ekkert alvarlegt, bara á léttu nótunum,“ svaraði Bergvin léttur.
Margt sem stendur upp úr
Aðspurður um hvað stendur upp úr hjá ÍR segir Bergvin það vera margt.
„Náttúrulega fara upp úr annarri deildinni. Komast í play-off-ið í fyrstu deildinni. Svo var síðasta tímabil geðveikt skemmtilegt. Vorum á toppnum þarna nánast allt mótið. Þannig að svo náttúrulega bara allir strákarnir, félagsskapurinn, þjálfararnir. Það er margt sem stendur upp úr enda langur tími.“
Stórir skór að fylla
Hvað heillaði við Stjörnuna?
„Það er margt sem spilaði inn í. Mér leist hrikalega vel á Rúnar Pál. Aðstaðan geðveik, hópurinn er frábær. Þeir under-performuðu í sumar. En vonandi á næsta ári þá rífum við okkur í gang og förum að berjast um eitthvað.“
Bergvin er fenginn til Stjörnunnar eftir að ljóst var að Emil Atlason yrði ekki áfram hjá félaginu. Það eru ansi stórir skór að fylla?
„Já, já, það er alveg hárrétt. En ég held ég sé alveg tilbúinn að taka skrefið. Sjáum til hvernig fer svo,“
Fiskað nokkur rauð spjöldin
Bergvin lýsir sér sjálfum sem stórum, sterkum framherja sem er góður í loftinu og lunkinn fyrir framan markið. Hann hefur einnig haft það orð á sér að vera einn af þeim leiðinlegri til að mæta.
„Já, ég hef fengið að heyra það. Enda fiskað nokkur rauð spjöldin. Leiðinlegur á velli, skemmtilegur að utan. Ég er að vinna með það,“ sagði Bergvin að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.