Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 26. mars 2026 20:40
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér líður frábærlega. Þetta var góður leikur fannst mér frá okkur. Fyrri hálfleikur kannski aðeins sloppy, tempoið vantaði, en við komum og sýndum í seinni hálfleik að við vorum miklu betri"  sagði Viktor Bjarki Daðason, leikmaður u21 landslið Íslands eftir 6-2 sigur á heimavelli gegn Eistlandi.


Lestu um leikinn: Ísland U21 6 -  2 Eistland U21

Hvernig fannst þér að spila með Daníel Guðjohnsen uppi?

„Mér fannst frábært að spila með honum. Við báðir skoruðum tvö mörk og mér fannst við vinna vel saman, það er mjög þægilegt að spila með honum og mér fannst það virka bara mjög vel."

Myndiru segja að þetta er draumabyrjunin á u21 landsliðsferlinum?

„Já, ég meina kannski ef ég hefði fengið þrennu, það hefði kannski verið aðeins betra. En ég er mjög ánægður með frammistöðuna."

Geturðu lýst mörkunum sem þú skoraðir?

„Ég sá að Gústi var með fullt af plássi á vængnum sem ég sá að hann gat horft vel hvar plássið var og ég hljóp aftur fyrir hann. Svo setti ég hann bara nær. Svo í seinni hálfleik vorum við búnir að teikna upp hornspyrnu til að fara fjær og boltinn datt til til mín og ég setti hann fjær."

Hvernig líst þér á næsta leik gegn Frökkum?

„Mér líður bara mjög vel. Það er gott að vinna svona stórt og sannfærandi til þess að fara með momentum inn í leikinn. Ég hef bullandi trú að við getum gert stóra hluti á móti Frakklandi en við þurfum fyrst og fremst að spila okkar leik."

Er raunhæft að stefna á sigur?

„Já, ég held að við eigum allt í það. Við erum með hörku lið, við sýndum það í dag að við eigum alveg að fara áfram, svo að ég held að við getum gefið Frökkum leik."

Hvernig fannst þér aðstæðurnar í dag?

„Alvöru íslenskt veður. Ég var ekki alveg viss um að leikurinn myndi fara fram en þeir náðu að gera þetta, leikurinn seinkaði um hálftíma. Ég meina frábært veður núna, ánægður."


Slapp
banner