26.06.12 - 10:10
Hafliði Breiðfjörð
Olivier Giroud til Arsenal (Staðfest)

Olivier Giroud er orðinn leikmaður Arsenal.

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur tilkynnt að franski landsliðsmaðurinn Olivier Giroud sé genginn til liðs við félagið frá Montpellier í heimalandinu og hafi skrifað undir langtíma samning við félagið.
Giroud sem er 25 ára gamall var í franska landsliðshópnum sem tók þátt í EM 2012. Hann komst í gegnum læknisskoðun hjá Arsenal í gær og nú eru félagaskiptin orðin staðfest og allri pappírsvinnu lokið.
Hann skoraði 21 mark fyrir Montpellier á síðustu leiktíð en liðið vann þá frönsku deildina.
,,Við erum ánægðir með að hafa gengið frá kaupum á Olivier Giroud,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.
,,Hann er sterkur líkamlega og einstakur í loftinu og mjög duglegur. Við erum spenntir fyrir því að Olivier komi til okkar og hann mun bæta við meiri vídd í sóknarmöguleika okkar á næstu leiktíð.\"

Heimild: Sky