Fotbolti.net
26.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Neymar skoðar framtíð sína eftir HM

Neymar skoðar framtíð sína eftir HM
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar mun ekki ganga í raðir bandaríska félagsins Cincinnati eftir heimsmeistaramótið. Blaðamaðurinn Tom Bogert greinir frá.
Neymar er farinn að skoða næstu skref á ferlinum en þessi 34 ára gamli Brasilíumaður hefur verið orðaður við félög í Bandaríkjunum.

Hann er samningsbundinn Santos út árið og enn er möguleiki á að hann verði áfram hjá félaginu. Neymar á þó eftir að setjast niður með stjórn Santos og ræða framtíðina eftir heimsmeistaramótið.

Neymar var í viðræðum við Cincinnati í MLS-deildinni en það er nú útilokað að hann fari þangað. Viðræðunum var slitið fyrir nokkru án þess að samkomulag næðist.

Brasilíumaðurinn er einnig með aðra möguleika á borðinu og mun skoða stöðuna betur þegar þátttöku Brasilíu á HM lýkur.

Neymar lék sinn fyrsta leik á mótinu í vikunni þegar Brasilía vann 3-0 sigur á Skotlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.