26.07.12 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Davíð Einarsson í Hött (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höttur hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta sumarsins í fyrstu deildinni en Davíð Einarsson hefur gengið til liðs við félagið.
Davíð er uppalinn KR-ingur en hann gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.
Fyrri hluta sumars var hann í láni hjá ÍR þar sem hann skoraði eitt mark í sex leikjum í fyrstu deildinni.
Davíð er miðjumaður og framherji en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Hetti þegar liðið heimsækir Hauka á sunnudag.
Höttur er í næstneðsta sæti í fyrstu deild karla í augnablikinu en liðið leitar þessa dagana logandi ljósi að markverði til að fylla skarð Ryan Allsop sem samdi við Leyton Orient á dögunum.