Fotbolti.net
26.07.12 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Allan McGregor til Besiktas í Tyrklandi (Staðfest)

Allan McGregor til Besiktas í Tyrklandi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skoski landsliðsmarkvörðurinn Allan McGregor er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við eitt besta lið Tyrklands, Besiktas.

Hjá Besiktas mun hann spila með leikmönnum á borð við Ricardo Quaresma, Simao og Hugo Almeida, en Besiktas endaði síðast í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar.
,,Samkvæmt opinberri yfirlýsingu sem var gefin út af Besiktas Football Ventures, hefur Allan McGregor fyrrverandi markvörður Glasgow Rangers skrifað undir tveggja ára samning við Ernina,\" stendur á vefsíðu Besiktas.

,,Þetta er stórt félag með stórar hefðir og mikla framtíð,\" sagði Allan McGregor í viðtali við BJK TV.

,,Ég hef heyrt að liðið njóti gífurlega mikils stuðnings og það eru víst mjög mikil læti í stuðningsmönnum á leikjum, ég er mjög spenntur fyrir því.

,,Ég ætla að leggja mig allan í þetta verkefni og vonandi næ ég að spila á mínu hæsta stigi.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.