26.07.12 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson
Tim Cahill er kominn til New York Red Bulls (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bandaríska MLS-félagið New York Red Bulls hefur staðfest að ástralski miðjumaðurinn Tim Cahill er að ganga til liðs við félagið.
Cahill kemur frá Everton fyrir eina milljón punda og er hann búinn að skrifa undir samning og standast læknisskoðun en eina sem vantar er að hann fái alþjóðlegt leyfi fyrir vinnustaðaskiptunum.

Félagsskiptin verða staðfest opinberlega á mánudaginn en Cahill segist vera gríðarlega ánægður með að vera kominn til Bandaríkjanna.
,,Ég er mjög ánægður og spenntur fyrir því að byrja nýjan kafla ferilsins hér hjá New York Red Bulls,\" sagði Tim Cahill.
,,Eins og sést hefur á síðustu árum þá hefur MLS deildin stækkað gríðarlega mikið og gæðin hérna eru mjög góð.
,,Ég mun gera allt sem ég get til að hjálpa New York að vinna sinn fyrsta MLS bikar. Ég vil einnig þakka öllum hjá Everton fyrir síðustu ár, bæði starfsmönnum innan félagsins og stuðningsmönnum.
,,Það hafa verið forréttindi að vera leikmaður Everton síðustu átta ár og það var mjög erfið ákvörðun að skilja við félagið. Ég mun alltaf styðja Everton og óska félaginu alls hins besta um ókomna tíð.\"
Thierry Henry og Guðlaugur Victor Pálsson eru meðal leikmanna New York Red Bulls.