26.07.18 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Aron Elís í Þrótt Vogum (Staðfest)

Aron Elís Árnason

Mynd: Þróttur Vogum

Aron Elís Árnason

Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur V. í 2. deildinni hefur styrkt sig fyrir síðari hluta tímabilsins en Aron Elís Árnason er kominn til liðsins eftir að hafa verið í fríi frá knattspyrnu.
Aron Elís, sem er 26 ára gamall markvörður, hefur leikið fyrir félög á borð við Njarðvík og Reyni Sandgerði auk þess sem hann lék með Langevag í Noregi.
Hann lék þá með Keflvíkingum á síðasta tímabili en spilaði þó ekki mótsleik.
Hann á að baki átta leiki fyrir yngri landslið Íslands, sjö fyrir U17 ára landsliðið og einn leik fyrir U19 ára landsliðið.
Hann hefur gert samning við Þrótt V. í 2. deildinni og er mikill liðsstyrkur en liðið er í sjötta sæti með 20 stig, fimm stigum frá efsta liði.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Þróttarar fá í þessum glugga en Antonio Jose Espinosa samdi við liðið eftir að hafa leikið fyrir Selfyssinga.
Þeir verða báðir með leikheimild á morgun er Þróttur mætir Gróttu.