26.07.18 - 11:34
Elvar Geir Magnússon
Fabian Schar til Newcastle (Staðfest)

Schar er mættur til Newcastle.

Mynd: Getty Images

Schar er mættur til Newcastle.

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur fengið til sín svissneska varnarmanninn Fabian Schar frá Deportivo La Coruna. Newcastle nýtti sér 3 milljóna punda riftunarákvæði í samningi þessa 26 ára miðvarðar.
Schar er fjórði leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar. Hann á 42 landsleiki fyrir Sviss.
<i>„Ég er ekki eins og hinn hefðbundni varnarmaður. Ég verst en ég er ansi góður með knöttinn. Ég vil byggja upp spil úr öftustu línu og það er minn helsti styrkleiki held ég. Ég hef skorað nokkur skallamörk og vonandi get ég gert það hérna,\"</i> segir Schar.

Newcastle, sem endaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, hefur einnig komist að samkomulagi um kaupverð á japanska sóknarmanninum Yoshinori Muto frá Mainz.
Muto er 26 ára og skoraði átta mörk fyrir Mainz á síðasta tímabili og var í japanska landsliðshópnum á HM í Rússlandi, þar sem hann lék einn leik.
Þegar hefur Newcastle bætt við sig markverðinum Martin Dubravka sem var hjá liðinu á lánssamningi, Ki Sung-yueng kom á frjálsri sölu frá Swansea og þá mætti Kenedy aftur á láni frá Chelsea og verður hann með Newcastle út komandi tímabil.