26.07.18 - 09:45
Elvar Geir Magnússon
MLS met þegar Bayern keypti 17 ára leikmann (Staðfest)

Alphonso Davies heldur ræðu vegna umsóknar Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó um að halda HM.

Mynd: Getty Images

Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa keypt táninginn Alphonso Davies frá Vancouver Whitecaps á 10 milljónir punda. Hann er dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið úr bandarísku MLS-atvinnumannadeildinni. Verðið gæti hækkað upp í 16,7 milljónir punda.
Davies er 17 ára kanadískur landsliðsmaður sem mun fara til Bayern í janúar, eftir MLS tímabilið.

„Þegar ég var yngri átti ég mér alltaf drauma um svona stundir. Nú þegar draumur hefur ræst þá er bara að halda vinnunni áfram,\" segir Davies sem skrifaði undir fimm ára samning við Bæjara.
Davies fæddist í flóttamannabúðum í Gana árið 2000. Fjölskylda hans fluttist síðan til Kanada sem flóttamenn þegar hann var fimm ára gamall.
Fyrir ári síðan varð hann kanadískur ríkisborgari og varð fljótlega sá yngsti til að spila fyrir landslið þjóðarinnar, 16 ára gamall.
„Þetta er stór stund fyrir félag okkar, þjóðina og deildina,\" segir Jeff Mallett, eigandi Whitecaps. „Alphonso er fyrirmynd sem sýnir hvað er mögulegt.\"
Josy Altidore var áður dýrasti leikmaður sem keyptur hafði verið úr MLS-deildinni en Villarreal borgaði 8,8 milljónir punda fyrir hann frá New York Red Bulls í júní 2008.