26.07.18 - 13:41
Elvar Geir Magnússon
Njarðvík fékk enskan miðjumann til sín (Staðfest)

Njarðvíkingar taka á móti Leikni í kvöld en þeir unnu á Leiknisvelli í upphafi móts.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvíkingar bættu við sig leikmanni í vikunni fyrir baráttuna framundan í fallbaráttu Inkasso-deildarinnar.
Um er að ræða 25 ára enskan miðjumann sem kemur frá skoska C-deildarliðinu Brechin City. Hann heitir James Dale.

Dale er uppalinn hjá Reading og Bristol Rovers en gekk til liðs við Forfar Athletic FC í Skotlandi árið 2013 og lék með liðinu í tvö tímabil.
Árið 2015 skipti hann yfir í Brechin City þar sem hann lék í þrjú tímabil og spilaði 80 leiki í Scottish League One og Scottish Championship (skoska C og B deildin). Samtals hefur hann spilað tæplega 150 leiki í Skotlandi.
Njarðvík er í harðri fallbaráttu í Inkasso-deildinni en eftir öfluga byrjun hefur liðið gefið talsvert eftir. Njarðvík tekur á móti Leikni í 13. umferðinni í kvöld.
Hér að neðan má sjá stöðuna í Inkasso-deildinni.