26.07.18 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Wolves fær leikmann lánaðan frá Atlético Madrid (Staðfest)

Jonny Castro er mættur og var þetta myndin sem Wolves bauð upp á á Twitter

Mynd: Heimasíða Wolves

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolverhampton Wanderers fékk spænska varnarmanninn Jonny Otto Castro á láni frá Atlético Madrid.
Jonny, sem er 24 ára gamall, getur spilað í bæði vinstri- og hægri bakverði.
Atlético Madrid keypti hann frá Celta Vigo í gær og gerði sex ára samning við hann en lánaði hann um leið til Wolves.
Hann mun því spila með nýliðunum í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð en Wolves hefur verið duglegt við að styrkja sig í sumar.
Félagið hefur fengið Joao Moutinho, Rui Patricio og Raul Jimenez til félagsins auk þess sem það festi kaup á Willy Boly, Diogo Jota, Ruben VInagre og Leo Bonatini, en þeir voru allir á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

And we couldn\'t let Jonny go without recording a message for everyone. #BienvenidoJonny
— Wolves (@Wolves) July 25, 2018
🗣📲 pic.twitter.com/OJjXDntvi5