26.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Gustavo Munua til Deportivo. (Staðfest)

Gustavo Munua öskrar á sína menn.


Gustavo Munua öskrar á sína menn.

Deportivo La Coruna hefur fengið markamanninn Gustavo Munua frá Club Nacional. Munua sem er 25 ára kemur frá Úrúgvæ og skrifaði hann undir 6 ára samning við Depor. Hann sagði að þetta væri draumur og að komast til Evrópu væri frábært fyrir leikmenn í Suður-Ameríku. Hann sagði einnig að Depor væri með 2 frábæra markmenn og að hann myndi bíða eftir sínu tækifæri.
Munua er ekki einungis frábær markmaður heldur ágætis vítaskytta og hann tryggði Nacional sigur á Oriente Petrolero í Copa Libertadores með marki úr víti á seinustu mínútunum.
