Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 26. október 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Kenneth Hogg og Bergþór framlengja við Njarðvík
Hogg fagnar marki í sumar.
Hogg fagnar marki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kenneth Hogg og Bergþór Ingi Smárason hafa framlengt samninga sína við Njarðvík um eitt ár.

Kenny er skoskur sóknarmaður en hann hefur skorað þrettán mörk í 2. deildinni í sumar og er fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar.

Þessi 29 ára gamli leikmaður kom til Njarðvíkinga um mitt tímabil árið 2017.

Bergþór Ingi er kantmaður sem hefur skorað fjögur mörk í 2. deildinni í sumar.

„Bergþór hefur spilað 154 leiki fyrir UMFN og sannarlega einn af okkar lykilmönnum, eru því þetta mikil gleðitíðindi," segir á Instagram síðu Njarðvíkinga.

Njarðvík er í 4. sæti í 2. deildinni og á ennþá möguleika á að fara upp um deild þegar tvær umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner