Fotbolti.net
26.11.21 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jóhann Árni á reynslu hjá Viborg

Jóhann Árni á reynslu hjá Viborg
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Jóhann Árni Gunnarsson er á reynslu hjá danska félaginu Viborg.

Jóhann er tvítugur miðjumaður sem mun dvelja í viku við æfingar hjá Viborg sem spilar í efstu deild í Danmörku.

Hann á að baki tæplega tuttugu leiki fyrir yngri landslið Íslands og var lykilmaður í liði Fjölnis í sumar.
Jóhann Árni náði því afreki að skora fimm mörk í einum leik í sumar og var valinn efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar í lok árs.

Hann er samningsbundinn Fjölni en hefur verið orðaður við önnur félög.

Sjá einnig:
Telur Jóhann Árna tilbúinn að fara erlendis (8. sept)
„Aldrei að vita nema hann verði í gulu treyjunni á næsta ári" (28. okt)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.