mið 27. janúar 2021 14:27
Magnús Már Einarsson
Hákon skoraði sitt fyrsta mark fyrir FC Kaupmannahöfn
Mynd: Getty Images
Hákon Arnar Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið FC Kaupmannahöfn þegar hann skoraði í 6-1 sigri á AGF í æfingaleik í dag.

Leikið var í 3x45 mínútur og Hákon skoraði á 129. mínútu leiksins.

Hákon slapp einn í gegn og lyfti boltanum laglega yfir markvörð AGF.

Hinn 17 ára gamli Hákon hefur leikið með aðalliði FCK í æfingaleikjum í þessum mánuði en vetrarfrí er í gangi í úrvalsdeildinni í Danmörku.

Hákon kom til FCK frá ÍA árið 2019 en hann hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands.

Athugasemdir
banner
banner
banner