Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 27. janúar 2022 20:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chambers til Aston Villa (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur staðfest komu Calum Chambers til félagsins frá Arsenal. Hann skrifar undir þriggja og hálfs árs samning.

Hann er 27 ára gamall og getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. Kaupverðið er óuppgefið.

Chambers gekk til liðs við Arsenal frá Southampton árið 2014 en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðinu. Hann hefur farið á lán til bæði Middlesbrough og Fulham.

Chambers er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Aston Villa í janúar en Steven Gerrard stjóri liðsins hefur þegar fengið Philippe Coutinho, Lucas Digne og Robin Olsen til liðs við sig.
Athugasemdir
banner
banner