Fotbolti.net
27.02.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Arilíus Marteinsson í Ægi (Staðfest)

Suðurlandsins eina von!

Suðurlandsins eina von!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Arilíus Marteinsson hefur gengið til liðs við Ægi á nýjan leik fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.

Arilíus er miðjumaður sem lék með Stokkseyri í 4. deildinni í fyrra eftir að hafa spilað með Ægi frá 2012 til 2016.
Frá 2001 til 2011 spilaði Arilíus með Selfyssingum en hann fór meðal annars tvívegis upp í Pepsi-deildina með liðinu.

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson var liðsfélagi Arilíusar á Selfossi og síðar í Ægi.

Ingólfur samdi lagið „Suðurlandsins eina von\" um Arilíus. Ingó tók lagið meðal annars í brekkusöngnum á Þjóðhátíð í fyrra.

Hlusta má má á lagið hér að neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.