Tékkneski miðjumaðurinn Tomas Soucek hjá West Ham var augljóslega mjög svekktur þegar hann fékk ekki treyju Virgil van Dijk, varnarmanns Liverpool, eftir viðureign liðanna á mánudaginn.
Soucek fékk höfnun frá Hollendingnum í göngunum
Soucek fékk höfnun frá Hollendingnum í göngunum
„Virgil! Get ég fengið treyjuna þína?" kallaði Soucek en Van Dijk svaraði: „Ég hef þegar lofað honum" og benti á Pablo Fornals.
Van Dijk skipti svo við Fornals um treyjur.
Þetta var vont kvöld fyrir Soucek, sem kom í janúar frá Slavia Prag. West Ham tapaði leiknum eftir að hafa verið yfir og þá fór Tékkinn meiddur af velli og verður frá í þrjár vikur.
Athugasemdir