Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 27. febrúar 2021 06:00
Aksentije Milisic
Monaco fylgist með gangi mála hjá Lacazette
Mynd: Getty Images
Franska liðið Monaco er að fylgjast með stöðu mála hjá Alexandre Lacazette, framherja Arsenal, en leikmaðurinn hefur mikið verið á varamannbekknum upp á síðkastið.

Pierre-Emerick Aubameyang hefur byrjað frammi í síðustu fjórum leikjum en Lacazette á einungis ár eftir af samningi sínum við félagið.

Monaco mun reyna að fá Lacazette í sumar en ef það gengur ekki gæti Arsenal átt í hættu á því að missa Frakkann frítt sumarið 2022 þegar samningur hans rennur út.

Monaco vann öflugan sigur á meisturunum í PSG í síðustu umferð í frönsku deildinni en liðið er í fjórða sæti deildarinnar þegar tólf umferðir eru eftir og því dauðafæri á að spila í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner