Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 27. febrúar 2021 09:30
Aksentije Milisic
Tierney blótaði leikmanni Benfica í sand og ösku fyrir dýfu
Mynd: Getty Images
Arsenal og Benfica mættust í Evrópudeildinni á fimmtudaginn síðastliðinn en þar komst Arsenal áfram eftir mikla dramatík.

Leikurinn fór fram í Grikklandi vegna Covid-19 og leiddu Portúgalarnir 2-3 samanlagt í síðari hálfleiknum. Arsenal þurfti þá tvö mörk til þess að komast áfram og það tókst að lokum.

Kieran Tierney, bakvörður Arsenal, hefur verið að spila mjög vel á þessu tímabili en hann er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum liðsins.

Í leiknum í gær varð Tierney eitthvað pirraður á Darwin Nunez, leikmanni Benfica, en hann lét sig falla frekar auðveldlega niður eftir baráttu við Skotann.

„Andskotans dýfandi hálfviti," sagði Tierney við Nunez við mikinn fögnuð stuðningsmanna Arsenal á Twitter.

„Þú getur tekið strákinn úr Glasgow, en þú getur ekki tekið Glasgow úr stráknum," voru á meðal ummæla stuðningsmanna Arsenal.

Bjorn Kuipers, dómari leiksins, virtist vera á sama máli og Tierney en hann flautaði enga aukaspyrnu og fékk Arsenal innkast.
Athugasemdir
banner
banner
banner