27.03.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ade Akinbiyi til Stoke. (Staðfest)
Ade Akinbiyi framherjinn sem er ekki þekktur fyrir markaskorun er farinn til Stoke. Akinbiyi verður á láni út tímabilið frá Crystal Palace en hann hefur lítið spilað með Palace í vetur. Gaman verður að sjá hvort að Akinbiyi tekst að finna markaskóna hjá Stoke.
