27.03.18 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óskar Elías Zoega semur við Þór (Staðfest)

Óskar Elías varð bikarmeistari með ÍBV í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestmannaeyingurinn Óskar Elías Zoega Óskarsson hefur gengið til liðs við Þór á Akureyri. <a href=\"http://thorsport.is/thorsport/D10Master.aspx?D10cID=ReadNews2&ID=12326\" target=\"_blank\">Frá þessu er sagt á vefsíðu Akureyrarliðsins</a>.
Óskar Elías er uppalinn hjá ÍBV og lék þar sína fyrstu skráðu meistaraflokksleiki árið 2011. Hann hefur einnig leikið með KFS, KFR og BÍ/Bolungarvík (innskot blaðamanns - núna Vestri) á ferli sínum.
Á síðasta leiktíð lék hann átta leiki í deild og bikar með Vestmannaeyingum.
Hinn 22 ára Óskar, sem getur spilað sem varnarmaður og miðjumaður, skrifaði undir saming til 2019 við Þór.

„Óskar kom til reynslu hjá Þór um miðjan mars og stóð sig afar vel. Flottur karakter sem mun styrkja Þórsliðið,\" sagði Óðinn Svan Óðinsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, við Thorsport.is.
Þórsarar, sem enduðu í 6. sæti í Inkasso-deildinni síðasta sumar, hafa verið duglegir að sækja sér leikmenn í vetur. Auk Óskars hafa framherjarnir Anthony Powell og Alvaro Monteja Callejo komið í Þór sem og varnarmennirnir Admir Kubat og Bjarki Þór Viðarsson.