Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
Gekk vel í prófi í morgun og skoraði tvö um kvöldið
Ver Úlfu fram í rauðan dauðann: Hefði þá átt að vera rautt á báðar
„Sá tækifæri á Íslandi og hugsaði núna eða aldrei"
Sá olnbogaskot metra frá sér og vildi rautt: Fyrir vikið verð ég reiður
Jasmín Erla: Misstirðu af því?
Hildur María: Þetta er bara upphafið á góðu rönni
Anton Ingi: Mættum strax grimmar í byrjun og alveg til enda
„Einn af þessum fótboltaleikjum þar sem maður hefði viljað tíu mínútur í viðbót"
Gylfi Tryggva: Þetta er eins og í boxbardaganum
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
banner
   fös 27. mars 2026 18:22
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Allir í hópnum leikfærir fyrir morgundaginn
Eimskip
Jesse Marsch landsliðsþjálfari Kanada og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.
Jesse Marsch landsliðsþjálfari Kanada og Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands.
Mynd: KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það verður gaman að kljást við Kanadamenn og upplifa þeirra stemningu," segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari. Kanada og Ísland mætast á morgun klukkan 17:00 að íslenskum tíma.

Íslenska liðið æfði á keppnisvellinum í Toronto í dag og allir tóku þátt. Arnar segir að allir séu leikfærir og í góðu standi, æfingar hafi gengið vel.

„Við ætlum að reyna að fylgja því eftir sem við gerðum vel á síðasta ári. Við höfum farið mikið í það á æfingum og fundum hvað fór úrskeiðis svo strákarnir skilji betur hvað smáatriðin skipta miklu máli á þessu getustigi," segir Arnar.

„Þetta gefur okkur tíma til að æfa okkur fyrir gluggann í haust þar sem verða margir leikir með stuttu millibili. Það munu margir fá mínútur í þessum glugga."

Þetta er bland í poka
Átta skiptingar eru leyfðar á morgun, hyggst Arnar notfæra sér það?

„Þetta er bland í poka. Þú vilt ekki eyðileggja taktinn í leiknum með því að skipta bara til að skipta. En menn eru á mismunandi stað og það þarf að passa vel upp á suma leikmenn og sjá til þess að þeir verði ferskir. Þá þurfum við kannski skipta meira en ella en við viljum ekki eyðileggja taktinn."

„Við erum með hrikalega góðan hóp og með hverju árinu verður enn meiri hausverkur að velja liðið. En það er líka jákvætt hvað við framleiðum mikið af góðum leikmönnum."

Hrósaði Jesse Marsch
Arnar hitti Jesse Marsch, kollega sinn sem þjálfara Kanada. Hvað fór þeirra á milli?

„Ég hrósaði honum bara fyrir liðið hans. Ég sagði að hans handbragð væri meira farið að sjást og hann játti því. Þetta er leikstíll sem er ekki allra miðað við fréttirnar heima. Hann er mjög dínamískur og með ákefð, við höfum ekki mætt svona liði áfram. Við fáum ekki mikið andrými gegn þeim og æfingarnar núna hafa mikið farið í að finna lausnir gegn þessari pressu. Þegar á hólminn er komið þurfa menn að sýna hugrekki," segir Arnar.

Búist við 25-30 þúsund áhorfendum
Búist er við 25-30 þúsund áhorfendum á leikinn á morgun og Arnar hvetur fólk heima til að kveikja á sjónvarpinu á morgun og stilla inn á leikinn.

„Það gefur þessa extra krydd að vera að fara að mæta liði sem er á leið á HM. Ef ég væri leikmaður Kanada myndi ég vilja tryggja mér farseðilinn með góðri frammistöðu. Ég held að það verði ekki venjulegur vináttulandsleikjafílingur og vonandi verður þetta góð skemmtun."
Slapp
banner
banner
banner