Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fös 27. mars 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Orðaður við Liverpool en segist þegar vera hjá stórliði
Mynd: EPA
Portúgalski vængmaðurinn Francisco Conceicao, sem er á mála hjá Juventus á Ítalíu, segist ekkert kippa sér upp við orðróma um að hann sé á óskalista Liverpool.

Liverpool ætlar að sækja vængmann eða tvo í sumarglugganum í ljósi þess að Mohamed Salah mun yfirgefa félagið.

Margir hafa verið orðaðir við Liverpool og þar á meðal Conceicao sem hefur verið að gera það gott á Ítalíu.

Hann hefur aðeins komið að 20 mörkum í 74 leikjum, en það er margt í leik hans sem þykir aðlaðandi. Knattrak og hraði er hans helsti kostur, en þetta er bara einn af mörgum möguleikum sem Liverpool er að skoða fyrir sumarið.

Leikmaðurinn sjálfur segist ekkert spá í sögusögnum og að öll einbeiting sé á Juventus.

„Ég veit að það eru orðrómur varðandi stórt félag, en ég er þegar ánægður hjá stóru félagi. Ég verð að halda áfram að leggja hart að mér og ná í mörk og stoðsendingar,“ sagði Conceicao.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
Athugasemdir
banner
banner