Fotbolti.net
27.06.12 - 15:05
Magnús Már Einarsson

Vedran Corluka til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Vedran Corluka til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rússneska félagið Lokomotiv Moskva hefur krækt í varnarmanninn Vedran Corluka frá Tottenham.

Þessi 26 ára gamli Króati hefur ksrifað undir þriggja ára samning við Lokomotiv.
Hjá félaginu hittir hann fyrir Slaven Bilic fráfrandi þjálfara króatíska landsliðsins en hann hefur tekið við stjórnartaumunum hjá Lokomotiv.

Corluka kom til Tottenham frá Manchester City árið 2007 en var ekki inni í myndinni undir það síðasta hjá Spurs.

Síðari helminginn á síðasta tímabili var Corluka í láni hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.