Fotbolti.net
27.07.12 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Robert Snodgrass til Norwich (Staðfest)

Snodgrass er örvfættur og þykir afar góður skotmaður.

Snodgrass er örvfættur og þykir afar góður skotmaður.

Canon

Mynd: Getty Images

Robert Snodgrass, 24 ára gamall skoskur kant- og sóknarmaður, er genginn til liðs við úrvalsdeildarfélagið Norwich City.

Snodgrass hefur verið einn af lykilmönnum Leeds United síðustu fjögur ár en nú er hann búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Norwich.
Snodgrass hefur verið orðaður við ýmis úrvalsdeildarfélög síðustu þrjú ár en nú er hann loksins búinn að taka stóra skrefið.

,,Robert Snodgrass hefur lokið félagsskiptum sínum til Norwich City,\" stendur á opinberri vefsíðu Leeds United.

,,Skoski landsliðsmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Kanarífuglana á fimmtudaginn eftir að hann stóðst læknisskoðun á Carrow Road.

,,Þessi 24 ára gamli leikmaður yfirgefur Leeds United eftir fjögur ár en hann kom til félagsins frá Livingston.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.