Fotbolti.net
27.07.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan fær tvær frá Seattle Sounders (Staðfest)

Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið liðsstyrk.

Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Mexíkóska landsliðskonan Veronica Perez er gengin til liðs við kvennalið Stjörnunnar og það sama má segja um hina bandarísku Kate Deines.
Þær hafa þegar fengið leikheimild með Stjörnunni og mega spila með liðinu gegn Þór/KA í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

Veronica Perez er sem fyrr segir mexíkósk landsliðskona sem á að baki fjóra landsleiki og hefur skorað eitt mark.

Hún er 24 ára gömul og framherji sem hefur verið hjá Seattle Sounders kvennaliðinu í Bandaríkjunum eins og Deines sem er 22 ára gömul og spilar á miðjunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.