Fotbolti.net
27.07.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Atli Már í Fylki (Staðfest)

Atli Már í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Fylkir hefur fengið miðvörðinn Atla Má Þorbergsson á láni frá Fjölni út tímabilið.
Atli Már á samtals 21 deildar og bikarleik að baki með Fjölni en hann gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Atli, sem er tvítugur, hefur ekki átt fast sæti í liði Fjölnis í sumar og einungis leikið tvo leiki.

,,Við erum með fjóra hafsenta í hópnum okkar fyrir utan Atla og því kjörið fyrir hann að æfa með úrvalsdeildarliði og hugsanlega fá einhverjar mínútur,\" sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag.

,,Bætir og þroskar hann sem leikmann fyrir átök komandi ára með Fjölni enda framtíðarleikmaður Fjölnis.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.