27.07.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eivinas í Sindra (Staðfest)

Mynd: Víkingur Ó.

Mynd: Víkingur Ó.
Eivinas Zagurskas sem spilað hefur með Snæfelli/UDN í 4. deild karla í sumar er búinn að fá félagaskipta yfir í Sindra.
Zagurskas er miðjumaður frá Litháen en hann kom til Víkings Ólafsvíkur í júlí í fyrra á sama tíma og bróðir hans Gabrielus Zagurskas. Eivinas spilaði í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en ákvað að koma í 4. deildina fyrir þetta sumar.
Hann hefur spilað 10 leiki með Snæfell í sumar og skorað þrjú mörk.
Eivinas er núna kominn í Sindra í 3. deildinni. Hann á að hjálpa liðinu að komast af botninum þar en það verður strembið verkefni.
Sindri er í neðsta sæti 3. deildar með sjö stig eftir 11 leiki, níu stigum frá öruggu sæti.
Eivinas er annar leikmaðurinn sem kemur í Sindra í þessum glugga, á eftir Ingva Ingólfssyni sem kom frá Leikni Fárskrúðsfirði.