27.07.18 - 13:04
Elvar Geir Magnússon
Fram selur unglingalandsliðsmann til Ítalíu (Staðfest)

Mikael Egill í treyju Fram.

Mynd: Fram

Mikael Egill í treyju Fram.

Mynd: Fram
Mikael Egill Ellertsson, sextán ára leikmaður úr Fram, er kominn í raðir ítalska úrvalsdeildarfélagsins S.P.A.L. 2013 en aðallið þess rétt náði að bjarga sér frá falli á síðasta tímabili.
„Ítalska liðið hefur fylgst með Mikael í talsverðan tíma og eftir að hann var tekinn inn í leikmannahóp Fram fyrir Inkasso-deildina í sumar jókst áhugi þeirra enn frekar,\" segir á heimasíðu Fram.
Það endaði síðan með því að SPAL gerði Fram og leikmanninum tilboð í júní og eftir samningaviðræður náðu félögin og Mikael saman í síðustu viku.
Mikael hefur í sumar spilað átta leiki með Fram í Inkasso-deildinni og fjóra í bikarnum.
„Við þökkum Mikael fyrir frábæra frammistöðu með Fram og óskum honum alls hins besta í nýjum og spennandi verkefnum á Ítalíu. Hann og fjölskyldan eru þegar farin út og hefjast æfingar á næstu dögum,\" segir á heimasíðu Fram.
„Þess má geta að Hörður Björgvin Magnússon landsliðsmaður fór einmitt líka frá Fram til Juventus á sínum tíma og Mikael er því annar ungur leikmaður Fram til að ganga til liðs við ítalskt úrvalsdeildarlið. Vonandi fetar Mikael í hans spor og leikur fyrir Ísland á stórmóti í framtíðinni.\"
Fram er í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar.