Fotbolti.net
27.07.18 - 20:23
Brynjar Ingi Erluson

Gunnar Borgþórs hættur með Selfoss (Staðfest)

Gunnar Borgþórsson á hliðarlínunni

Gunnar Borgþórsson á hliðarlínunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Borgþórsson er hættur með Selfoss í Inkasso-deild karla en knattspyrnudeild félagsins gaf frá sér yfirlýsingu í kvöld.
Selfyssingar hafa átt afar slakt tímabil í sumar en liðið er í ellefta sæti deildarinnar með 11 stig þegar þrettán umferðir eru búnar.

Gunnar tók við karlaliðinu árið 2015 en hann hafði áður þjálfað kvennalið félagsins.

Það hefur lítið gengið upp í sumar eins og áður segir og ákvað Gunnar að hætta með liðið en knattspyrnudeild félagsins gaf út yfirlýsingu í kvöld.

Yfirlýsing knattspyrnudeildar:

Gunnar Borgþórsson, þjálfari meistaraflokks karla, hefur óskað eftir því við stjórn knattspyrnudeildar að hann stígi til hliðar sem aðalþjálfari liðsins.

Gunnar tók þessa ákvörðun af yfirvegun með hagsmuni klúbbsins að leiðarljósi.

Þegar er hafin leit að þjálfara fyrir meistaraflokk karla.

Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss þakkar Gunnari fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.