Fotbolti.net
27.07.18 - 09:13
Elvar Geir Magnússon

Karl Brynjar í Fram (Staðfest)

Karl Brynjar færir sig um set í Laugardalnum.

Karl Brynjar færir sig um set í Laugardalnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn reyndi Karl Brynjar Björnsson hefur haft félagaskipti i Inkasso-deildinni og er genginn til liðs við Fram frá Þrótti.
Karl Brynjar er 33 ára en samningi hans við Þrótt var rift nýlega. Hann gerir samning við Fram út tímabilið.

Karl Brynjar er uppalinn hjá FH en gekk tvítugur til liðs við ÍR og lék með Breiðhyltingum á árunum 2005-2011. Árið 2012 gekk Karl Brynjar til liðs við Þrótt og hefur leikið þar síðan og meðal annars borið fyrirliðabandið.

Karl Brynjar hefur mikla reynslu úr Inkasso-deildinni og var m.a. valinn í liðs ársins bæði 2014 og 2015.

„Knattspyrnudeild Fram bíður Karl Brynjar velkominn og væntir þess að tilkoma hans styrki hinn unga hóp Fram í þeirri hörðu baráttu sem framundan er í Inkasso-deildinni,\" segir á heimasíðu Fram.

Fram gerði 2-2 jafntefli við Þrótt í Inkasso-deildinni í gær en þeir bláu eru í sjötta sæti, tveimur stigum á eftir Þrótturum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.