27.07.18 - 12:24
Arnar Daði Arnarsson
KR semur við Króata (Staðfest)
Stefna á að lána hann annað

Aleksic á fjölda leikja að baki fyrir yngri landslið Króatíu.

Mynd: Samsett

Rúnar Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

KR-ingar hafa samið við vinstri bakvörðinn, Ivan Aleksic út tímabilið 2019. Ivan hefur æft með KR undanfarnar vikur og hefur nú fengið leikheimild með KR í Pepsi-deildinni.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR sagði í samtali við Fótbolta.net að stefnan væri að lána Ivan í annað lið út þetta tímabil.

„Hann flutti til Íslands með kærustunni sinni sem á ættingja hér á landi og það er ástæðan fyrir því að hann kom til landsins.\"
„Hann hefur æft með okkur undanfarnar þrjár vikur og hefur staðið sig vel. Hann er góður í fótbolta en hann er ekki í leikformi. Við vonumst til að við getum notað hann í framtíðinni,\" sagði Rúnar en Ivan er 25 ára og hefur allan sinn feril leikið í Króatíu.
Hann hefur verið án félags undanfarna mánuði.
„Hugmyndin var að hjálpa honum af stað og lána hann og láta hann spila. Síðan sjáum við hvernig hann stendur sig og hvort þetta sé leikmaður sem getur hjálpað okkur í framtíðinni.\"
Hann á að baki landsleiki með öllum yngri landsliðum Króatíu.
Rúnar Kristinsson segist ekki búast við því að KR-ingar styrki sig eitthvað meira í félagaskiptaglugganum sem lokar um mánaðarmótin. „Við erum að skoða einhver mál en það er lítill tími til stefnu og ég á því ekki von á því að það gerist eitthvað meira en þetta.\"
KR tekur á móti Grindavík í Pepsi-deildinni á mánudag.