Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. júlí 2018 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Landsliðsþjálfari Rússa fær framlengingu (Staðfest)
Stanislav Cherchesov
Stanislav Cherchesov
Mynd: Getty Images
Stanislav Cherchesov, þjálfari rússneska landsliðsins, framlengdi í dag samning sinn við knattspyrnusambandið til ársins 2020.

Cherchesov gerði frábæra hluti með rússneska landsliðið á heimavelli á HM í sumar.

Hann fór með liðið alla leið í 8-liða úrslitin þar sem liðið tapaði í vítaspyrnukeppni.

Rússneska knattspyrnusambandið var afar ánægt með störf hans og ákvað því að framlengja samning hans til næstu tveggja ára.

Vladimir Putin, forseti Rússlands, mun taka á móti Cherchesov og leikmönnum rússneska landsliðsins á morgun í Kremlin en þar verður hópurinn heiðraður fyrir frammistöðu þeirra á HM.
Athugasemdir
banner
banner