27.07.18 - 10:20
Elvar Geir Magnússon
Martraðardvöl Klaassen hjá Everton lokið - Kominn í Werder Bremen (Staðfest)

Davy Klaassen sáttur með að vera orðinn grænn.

Mynd: Werder Bremen

Þýska félagið Werder Bremen hefur gengið frá kaupum á Davy Klaassen frá Everton. Þýska félagið hefur staðfest þetta.
Klaassen fór á Goodison Park á 24 milljónir punda frá Ajax í fyrrasumar en náði ekki að láta til sín taka.
Hann spilaði aðeins sextán leiki fyrir Everton, þar af voru aðeins þrír byrjunarliðsleikir í ensku úrvalsdeildinni.

Hollendingurinn átti það erfiðan tíma á Merseyside að hann gekk næstum í raðir Napoli á láni í janúar en það féll niður á síðustu stundu.
Marco Silva, nýr stjóri Everton, tilkynnti Klaassen að hann væri ekki hluti af sínum áætlunum.
Bremen borgar 12 milljónir punda fyrir þennan 25 ára leikmann. Í viðtali við heimasíðu þýska félagsins segir Klaaassen að sóknarsinnaður leikstíll liðsins heilli sig.
Bremen endaði í 11. sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili.