27.07.18 - 10:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ólafur Hrannar kominn í Leikni (Staðfest) - Sólon frá næstu vikur

Óli er að koma aftur í Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli er að koma aftur í Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson er kominn aftur í sitt uppeldisfélag Leikni.
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Þróttar, sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær að Ólafur væri á heimleið og Leiknismenn staðfestu þetta á heimasíðu sinni nú rétt áðan.

Ólafur hafði leikið með Leikni í Breiðholti allan sinn feril áður en hann gekk í raðir Þróttar í fyrra. Hann var lengi í lykilhlutverki hjá Leikni áður en hann fór, hann hefur leikið þar um 200 leiki í meistaraflokki og verið iðinn við markaskorun auk þess sem hann var fyrirliði Leiknis á tímabilinu 2013-2016.
Hann hefur komið við sögu í 10 leikjum í Inkasso-deildinni í sumar og skorað þrjú mörk. Í fyrra lék hann 13 leiki og skoraði þrjú mörk.
Leiknir er í sjöunda sæti Inkasso-deildarinnar en fallbaráttan er afar hörð þessa stundina. Liðið hefur ekki skorað í síðustu þremur leikjum og kemur Ólafur á góðum tíma þar sem sóknarmaður Leiknis, Sólon Breki Leifsson, meiddist í leik gegn ÍA á dögunum og verður frá næstu vikurnar. Hann lék ekki þegar Leiknir tapaði fyrir Njarðvík 1-0 í gær.