Fotbolti.net
27.07.18 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Scolari tekur við Palmeiras í þriðja sinn (Staðfest)

Scolari mættur á kunnuglegan stað.

Scolari mættur á kunnuglegan stað.

Canon

Mynd: Getty Images

Luiz Felipe Scolari, fyrrum stjóri Chelsea, hefur verið ráðinn stjóri Palmeiras í Brasilíu í þriðja sinn.

Þessi 69 ára maður skrifaði undir tveggja ára samning við Palmeiras sem staðsett er í Sao Paulo og hefur níu sinnum orðið Brasilíumeistari.
Scolari stýrði Palmeiras fyrst milli 1997 og 2000. Hann sneri svo adtur til félagsins 2010 og var í tvö ár, eftir að Chelsea hafði rekið hann.

Hann stýrði brasilíska landsliðinu til sigurs á HM 2002.

Þá stýrði hann Brasilíu einnig á HM 2014 en þar tapaði liðið 7-1 fyrir Þýskalandi á heimavelli í frægum undanúrslitaleik.

Síðasta starf hans var í Kína með Guangzhou Evergrande en hann hefur verið án starfs síðan í nóvember 2017.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.