Fotbolti.net
27.07.18 - 13:59
Arnar Daði Arnarsson

Víkingar ætla að styrkja sig - Meiðsli Sölva ekki alvarleg

Sölvi Geir Ottesen gæti náð leiknum á sunnudaginn.

Sölvi Geir Ottesen gæti náð leiknum á sunnudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi Ólafsson þjálfari Víkings í Pepsi-deild karla vonast til að fyrirliði liðsins, Sölvi Geir Ottesen verði orðinn leikfær fyrir leikinn á sunnudaginn þegar Víkingar mæta Stjörnunni í 14. umferð deildarinnar.
Sölvi Geir fór meiddur af velli á 10. mínútu gegn Val í síðustu umferð sem leikinn var á sunnudaginn síðasta. Sá leikur tapaðist 4-1.

Logi vonast einnig til þess að fá nýjan leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðvikudaginn.

„Við vonumst til þess að fá nýjan leikmann í glugganum en það er ekkert öruggt í þessum heimi fyrr en það er komið (staðfest) innan sviga inn á Fótbolta.net. , þá fyrst geta menn farið að trúa hlutunum,\" sagði Logi Ólafs léttur.

Hann segir að félagið sé að vinna í leikmannamálunum en ekkert sé hægt að gefa upp að svo stöddu.

„Vonandi getum við fært stuðningsmönnunum einhverjar gleðifréttir.\"

Víkingar taka á móti Stjörnunni á sunnudagskvöldið í 14. umferð Pepsi-deildarinnar. Stjarnan er í 2. sæti deildarinnar þremur stigum á eftir toppliði Vals.

Víkingar eru í 8. sæti deildarinnar með 18 stig eftir þrettán umferðir.

Leikirnir framundan í Pepsi-deildinni:

sunnudagur 29. júlí
16:00 ÍBV-KA (Hásteinsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)

mánudagur 30. júlí
19:15 FH-Fjölnir (Kaplakrikavöllur)
19:15 Keflavík-Breiðablik (Nettóvöllurinn)
19:15 Fylkir-Valur (Egilshöll)
19:15 KR-Grindavík (Alvogenvöllurinn)
Logi Ólafsson þjálfari Víkings.

Logi Ólafsson þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.