25.07.26 - 14:01
Brynjar Ingi Erluson
PSG í baráttuna um Rodri

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru komnir í baráttuna um spænska miðjumanninn Rodri. Það er Fabrice Hawkins sem greinir frá.

TENGT EFNI
Sannfærðir um að fá Rodri til sín
Hawkins, sem er einn allra virtasti blaðamaður Frakklands, segir að PSG hafi sett sig í samband við Manchester City til að kanna á hvaða kjörum félagið væri reiðubúið að selja Rodri.
Rodri var valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins í sumar þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar í annað sinn í sögunni.
Real Madrid er enn talið líklegasti áfangastaður miðjumannsins, sem hefur lengi dreymt um að leika fyrir félagið. Rodri hefur náð samkomulagi við Madrídinga um eigin kjör og bíður þess nú að félögin semji um kaupverð.
Hawkins segir hins vegar að PSG, sem hafði ekki ætlað sér að kaupa miðjumann í sumar, hafi nú blandað sér í baráttuna. Rodri á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester City og því gæti enska félagið neyðst til að selja hann.
PSG og Real Madrid berjast því nú um tvo eftirsóttustu leikmenn markaðarins. Félögin eiga jafnframt í viðræðum við RB Leipzig um kaup á vængmanninum Yan Diomande.
Eftir heldur rólegar vikur virðist nú vera að færast verulegur hiti á leikmannamarkaðinn.