27.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Babbel til Blackburn. (Staðfest)

Markus Babbel fagnar.


Markus Babbel fagnar.

Fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja, Markus Babbel er farinn til Blackburn Rovers frá Liverpool á lánssamningi út þetta tímabil. Þessi þrítugi varnarmaður hefur náð ótrúlegum bata eftir að hafa greinst með vírus en samkeppnin um hægri bakvarðarstöðuna hjá Liverpool er mikil og Jamie Carragher og Steve Finnan er báðir á undan í forgangsröðinni. Þessi samningur hefur verið lengi til umræðu og Greame Souness stjóri Blackburn hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á kappanum.
