27.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Marlet til Marseille. (Staðfest)

Steve Marlet.


Steve Marlet.

Sóknarmaður Fulham, Steve Marlet hefur verið lánaður til Marseille út þetta tímabil. Þessi 29 ára Frakki hefur ekki fundið sig í Englandi en hann kom frá Lyon fyrir 11,5 milljónir punda fyrir tveimur árum síðan. Hann hefur þrátt fyrir allt verið fastamaður í Franska landsliðshópunum. Hann tilkynnti Chris Coleman á föstudaginn að hann vildi yfirgefa félagið en hann hafði sagt aðeins nokkrum klukkutímum áður að hann vildi vera áfram hjá Fulham. Þannig að þetta hefur verið í bígerð núna síðan á föstudag og er loks klappað og klárt.
