Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. september 2021 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola veit ekki hvernig á að stöðva PSG
Mynd: Getty Images
PSG fær Manchester City í heimsókn í A-riðli Meistaradeildarinnar á morgun.

Lið PSG er stjörnum prýtt en Lionel Messi hefur verið að kljóst við meiðsli að undanförnu. Hann erbyrjaður að æfa þó en spurning hvort hann taki þátt í leiknum.

„Það myndi gera mikið fyrir leikinn ef Messi er með. Ég vona að hann spili," segir Guardiola.

Guardiola sagði enn fremur að hann hefði ekki hugmynd um hvernig ætti að stöðva PSG.

„Með þessi gæði þá veit ég ekki hvernig á að stöðva þá. Þeir eru svo góðir. Þeir eru með svo mikla hæfileika, það gerir þetta svo erfitt."
Athugasemdir
banner