Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. nóvember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Neymar ekki einu sinni einn af 30 bestu í Evrópu"
Mynd: Getty Images
Stöðugar sögusagnir hafa gengið manna á milli um að Neymar muni snúa aftur til Barceolona frá PSG eftir að PSG keypti hann árið 2017.

Toni Freixa, sem ætlar að bjóða sig fram til forseta Barcelona, gefur lítið fyrir þær sögusagnir og hefur engan áhuga að sjá Neymar aftur hjá Barcelona.

„Neymar, vegna frammistöðu sinnar að undanförnu, er ekki einu sinni einn af 30 bestu leikmönnum í Evrópu. Ef ég verð forseti mun ég aldrei fá hann til félagsins," sagði Freixa við Cadena SER.

Neymar hefur skorað 73 mörk í 93 leikjum með PSG. PSG er sagt vilja halda Neymar og framlengja samning Brasilíumannsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner