Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. desember 2012 10:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Franco Di Santo til Liverpool?
Powerade
Di Matteo er orðaður við Nottingham Forest.
Di Matteo er orðaður við Nottingham Forest.
Mynd: Getty Images
Slúðurpakkinn er í styttri kantinum í enska boltanum í dag.



Neymar mun ekki yfirgefa Santos þrátt fyrir sögusagnir um að Manchester City, Chelsea, Real Madrid og Barcelona hafi áhuga á honum. (Sky Sports)

Óvíst er hvort varnarmaðurinn Stopilla Sonzu komi til Reading á þrjár milljónir punda eftir að hann var valinn í landsliðshóp Sambíu fyrir Afríkumótið. (The Sun)

Liverpool gæti gert tilboð í Franco Di Santo framherja Wigan í janúar. Brendan Rodgers stjóri Liverpool vann með Di Santo hjá Chelsea á sínum tíma. (Daily Mirror)

Demba Ba framherji Newcastle vill fá tækifæri til að spila með PSG en það var lið hans í æsku. Arsenal, Chelsea, Liverpool og QPR hafa einnig öll áhuga á Ba. (Metro)

Liverpool er tilbúið að gera tilboð í Jack Butland markvörð Birmingham en Everton hefur einnig áhuga. (Daily Mirror)

Roberto Di Matteo og Roy Keane hafa verið orðaðir við stjórastöðuna hjá Nottingham Forest eftir að Sean O'Driscoll var rekinn í gærkvöldi. (Daily Telegraph)

Anton Zingarevich, eigandi Reading, vill fá Andrey Arshavin til félagsins í janúar. (Daily Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner