28.02.18 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Akil De Freitas í Vestra (Staðfest)

Akil De Freitas spilaði með Sindra á síðasta tímabil og skoraði þar átta mörk. Hér er hann í bikarleik gegn FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri er að safna sér liðsstyrk fyrir átökin í 2. deild karla í sumar. Liðið hefur nælt í sóknarleikmanninn Akil De Freitas.
Akil er frá Trínidad og Tóbagó en hann er 31 árs.
Hann spilaði með Sindra er liðið féll úr 2. deildinni í fyrra og var hann einn af ljósu punktunum í liðinu þar sem hann skoraði átta mörk í 22 deidlarleikjum í fyrra.

Áður en hann kom til Sindra í fyrra var hann á mála hjá Jazz og Kultsu í finnsku B og C-deildinni.
Akil var á sínum tíma í yngri landsliðum Trínidad og Tóbagó en hann hefur einnig leikið í Litháen á ferli sínum.
Sóknarmaðurinn Sólon Breki Leifsson samdi um að spila með Vestra í nóvember síðastliðnum en skipti svo óvænt yfir til Leiknis í Breiðholtinu snemma í febrúar. Akil kemur væntanlega í hans stað að einhverju leyti.
Vestri olli vonbrigðum í 2. deild karla síðasta sumar og endaði í níunda sæti.
Bjarni Jóhannsson tók við Vestra eftir síðasta tímabil og mun stýra liðinu í sumar.